Nám fyrir þig sem vilt dýpka eigin vegferð og læra að leiða aðra í gegnum Lærðu að elska þig með hjartanum, fagmennsku og skýrum verkfærum.
Kennaranámið er fyrir þig sem hefur sjálf farið í gegnum Lærðu að elska þig, vilt dýpka eigin þroska og langar að leiða aðra í sömu vegferð. Námið hentar þér sem finnur kallið til að styðja fólk, halda rými og skapa öruggt og nærandi umhverfi.
Þú heldur áfram að vaxa sjálf/ur.
Þú lærir að styðja aðra á þeirri vegferð.
Þú færð skýra uppbyggingu og leiðsögn
Námið byggir á sömu grunngildum og Lærðu að elska þig og sameinar sjálfsvinnu, fræðslu, innsæi og kennslufærni.
Dýpka sambandið við þig og styrkja eigin grunngildi.
Skilja tengsl, mörk og heilbrigð samskipti.
Hvernig þú heldur rými, leiðir hóp og styður aðra.
Styrkja þína rödd og treysta á eigin innsæi.
Tengjast innri visku og læra að vinna með henni.
Fá verkfæri og aðferðir til að kenna námskeiðið.
Kennaranámið er 300 klst. og fer fram í netkennslu með fjölbreyttu kennsluefni, lifandi fundum og verklegum æfingum. Námið byggir á dýpri sjálfsvinnu, fræðslu, umræðum og leiðsögn, þar sem þú færð stuðning alla leið.
heildarnám
í netkennslu
fræði, æfingar og verkleg vinna
Inntökuskilyrði
Verð
648.000 kr.
Greiðslumöguleikar í boði. Nánari upplýsingar veittar við umsókn.Nánari upplýsingar um uppbyggingu og námsgögn verða veittar við umsókn.
Hér svörum við helstu spurningum um kennaranámið. Ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að máttu endilega hafa samband.
Kennaranámið er fyrir þig sem hefur lokið námskeiðinu Lærðu að elska þig, vilt dýpka eigin sjálfsvinnu og hefur áhuga á að leiða aðra í sömu vegferð.
Þú þarft að hafa lokið námskeiðinu Lærðu að elska þig og senda inn umsókn með stuttri ritgerð.
Námið fer fram í netkennslu með fjölbreyttu kennsluefni, lifandi fundum og verklegum æfingum. Það sameinar fræðslu, sjálfsvinnu, umræður og leiðsögn.
Kennaranámið er 300 klukkustundir og stendur yfir í eitt ár.
Þú dýpkar sambandið við sjálfa þig og lærir um samskipti, mörk, sjálfstraust og innsæi. Jafnframt færðu verkfæri til að halda rými, leiða hópa og kenna námskeiðið Lærðu að elska þig.
Já, leiðsögn og stuðningur eru hluti af náminu. Lifandi fundir, umræður og verklegar æfingar styðja þig við að tengja námsefnið eigin reynslu og þjálfa kennslufærni þína.
Verð námsins er 648.000 kr.
Greiðslumöguleikar eru í boði. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag námsins.
Þú sendir inn umsókn ásamt stuttri ritgerð. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar áður en þú sækir um geturðu sent fyrirspurn.
Ef þú finnur kallið til að leiða aðra, dýpka þína eigin vegferð og starfa með hjarta að leiðarljósi, þá gæti kennaranámið verið næsta skref fyrir þig.