
Finndu töfrana þína á Amalfi
Þar sem sjálfsefling, ítölsk lífsgleði og ævintýri mætast Amalfi-ströndin er eins og ævintýri. Litríkir bæir sem teygja sig upp eftir fjallshlíðum, þröngar steinlagðar götur, stórbrotið útsýni og einstök ítölsk stemning. Í þessu dásamlega umhverfi urðu til ógleymanlegar skvísuferðir með Ósk og Bryndísi, þar sem konur komu saman til að næra líkama og sál, styrkja sjálfsmyndina og njóta lífsins. Hugmyndin að ferðunum var einföld en töfrandi: Að sameina allt það sem gerir lífið svo dásamlegt — gúrmei, gleði, sjálfseflingu, hreyfingu, slökun

